Á kafi í jólaskrautinu

Lögreglan á Akranesi handtók í gærkvöld mann sem brotist hafði inn í geymslu í fjölbýlishúsi á Akranesi. Lítið annað en jólaskraut var í geymslunni og var maðurinn önnum kafinn við að róta í kössum er að var komið.

Maðurinn var í annarlegu ástandi og var látinn sofa úr sér á lögreglustöðinni í nótt. Lögreglan hefur áður haft  afskipti af þessum sama manni, sem einnig þá var komið að í geymslu sem innihélt lítið annað en jólaskraut.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert