Um 1000 manns á Úlfaldanum

Nóg að gera hjá lögreglunni á Húsavík.
Nóg að gera hjá lögreglunni á Húsavík. mbl.is/Július

Lögreglan á Húsavík hafði nóg að gera um helgina en í Mývatnssveit var haldin tónlistarhátíðin Úlfaldi úr Mýflugu. Taldi lögregla að um þúsund manns hefðu sótt hátíðina heim. 

Hátíðin fór vel fram en þrjú fíkniefnamál komu upp á föstudagskvöldinu og tveir voru stöðvaðir fyrir akstur undir áhrifum en reyndust þó undir mörkum.

Þá féll einn gestanna 5-6 metra niður í gjótu og ökklabrotnaði.

Í gærkvöldi varð mótorhjólaslys í Mývatnssveit við Bláfjall. Þar var maður á ferð með þremur öðrum á mótorhjóli. Hann datt á hjólinu og var fluttur á sjúkrahúsið á Akureyri með hugsanlegt rifbrot.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert