Mannval í atvinnuviðtalinu
Árni Páll Árnason, félagsmálaráðherra, var sjálfur viðstaddur viðtöl við umsækjendur um umboðsmann skuldara.
Árni Páll Árnason, félagsmálaráðherra, var sjálfur viðstaddur viðtöl við þá tvo umsækjendur um embætti umboðsmanns skuldara sem boðaðir voru í viðtal 20. júlí sl. Einnig voru viðstaddir aðstoðarmaður ráðherrans, ráðuneytisstjórinn og framkvæmdastjóri ráðningafyrirtækisins STRÁ MRI.
Þetta kemur m.a. fram í skriflegum rökstuðningi félags- og tryggingamálaráðuneytisins fyrir skipan í embætti umboðsmanns skuldara. Ásta Sigrún Helgadóttir, annar umsækjendanna tveggja sem kallaðir voru í viðtal óskaði eftir rökstuðningnum. Hann hefur nú verið birtur á heimasíðu ráðuneytisins.
Hinn umsækjandinn sem boðaður var í viðtal var Runólfur Ágústsson, sem var ráðinn. Hann sagði af sér í gærkvöldi, að kvöldi fyrsta dags síns í embætti.
Í frétt ráðuneytisins segir að í kjölfar viðtalanna hafi ráðningarfyrirtækinu verið falið að gera ítarlegt hæfnismat á hvorum umsækjendanna fyrir sig.
„Var þar tekið mið af almennum hæfisskilyrðum sem sett voru í auglýsingu um embættið, auk annarra málefnalegra sjónarmiða sem ráðuneytið taldi nauðsynlegt að leggja til grundvallar. Var sérstaklega litið til reynslu og þekkingar umsækjendanna sem nýst gætu í starfi, mat á leiðtogahæfni, sjálfstæði og fagmennsku í vinnubrögðum, hæfni í mannlegum samskiptum og færni til að tjá sig í ræðu og riti.
Horft var til frammistöðu umsækjenda í starfsviðtali og tekið mið af umsögnum um þá sem aflað hafði verið. Við mat á umsækjendum um embætti umboðsmanns skuldara var ekki litið til persónulegra fjárreiðna þeirra og í auglýsingu voru engar skilgreindar kröfur hvað það varðar enda þess ekki krafist í lögum um umboðsmann skuldara,“ segir m.a. í fréttinni.
Í skriflegum rökstuðningi til Ástu Sigrúnar kemur fram að Runólfur Ágústsson hafi verið metinn hæfasti umsækjandi. Þar segir m.a.: „Runólfur Ágústsson var talinn best til þess fallinn að gegna embættinu og ákvað ráðherra því að skipa hann til að gegna því.“
|
|
Skriflegur rökstuðningur félagsmálaráðuneytisins |
Bloggað um fréttina
-
Jenný Stefanía Jensdóttir Vandlifað! -
Kristján G. Arngrímsson Leiðtogahæfni -
-
Jón Baldur L'Orange Datt engum í hug að spyrja um viðskiptaævintýri umsækjandans í ...
Innlent »
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
Svipaðar fréttir
- Föstudagur, 23. júlí 2010, Innlent Nýr umboðsmaður skuldara
- Miðvikudagur, 4. ágúst 2010, Innlent „Það eina rétta í stöðunni“
- Miðvikudagur, 14. júlí 2010, Innlent Níu sóttu um
- Miðvikudagur, 4. ágúst 2010, Innlent Ræða hvort auglýsa á starfið
- Miðvikudagur, 4. ágúst 2010, Innlent „Ég hef tekið tvær ákvarðanir í málinu“
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































