Auðveld leið að einblína á hækkanir

Þórunn Sveinbjarnardóttir.
Þórunn Sveinbjarnardóttir. mbl.is/Ásdís

„Fólk á að horfa á útgjöld og skera þau niður. Það er auðveld leið að einblína á skattahækkanir,“ segir Magnús Orri Schram, þingmaður Samfylkingar.

Starfshópur skoðar nú hækkun ýmissa skattstofna. Því er þingmaðurinn mótfallinn en hann samþykkir bankaskatt. 

Þórunn Sveinbjarnardóttir, formaður þingflokks Samfylkingarinnar, segir að Magnúsi Orra sé frjálst að setja skoðanir sínar fram. „Það liggur fyrir að það verða einhverjar nýjar skattatillögur í nýju frumvarpi til fjárlaga. Hins vegar er ljóst að stærsti hlutinn verður fólginn í niðurskurði en ég held að best sé að ræða þessi mál þegar nýtt frumvarp liggur fyrir.“

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert