Óvíst hverju flutningur málefna fatlaðra til sveitarfélaga skilar

Málefni fatlaðra verða flutt til sveitarfélaga á næsta ári.
Málefni fatlaðra verða flutt til sveitarfélaga á næsta ári. mbl.is/Eggert

Áformað er að flytja málefni fatlaðra alfarið frá ríki til sveitarfélaga í byrjun næsta árs. Félagsmálaráðuneytið mun þó eftir sem áður bera ábyrgð á yfirstjórn hans og hafa eftirlit með þjónustunni. Ríkisendurskoðun segir, að þrátt fyrir þessi áform liggi ekki fyrir mat á því hvaða ávinningi flutningurinn muni hugsanlega skila og það sé ámælisvert.

Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Ríkisendurskoðunar. Segir þar að   samkvæmt fjárlögum muni framlög til þjónustu við fatlaða nema samtals 11,2 milljörðum á þessu ári.

Bent er á ýmsa veikleika í skipulagi og stjórnun málaflokksins. Þannig liggi t.a.m. ekki fyrir formlega samþykkt heildarstefna um hann og fjárveitingar taki ekki mið af reglulegu mati á þörf fyrir þjónustu. Einnig sé eftirliti með þjónustunni ábótavant og því ekki tryggt að jafnræði ríki meðal þjónustuþega.
 
Svæðisskrifstofur sjá um að veita þjónustu við fatlaða í umboði félags- og tryggingamálaráðuneytisins. Að auki hefur ráðuneytið samið við fimm sveitarfélög eða byggðasamlög um að veita þjónustuna gegn greiðslum úr ríkissjóði. Í skýrslunni kemur fram að ekki liggi fyrir með hvaða hætti þessir samningar hafi verið uppfylltir. 
 
Í skýrslunni er bent á ýmsar leiðir til að bæta stjórnun málaflokksins. Meðal annars þurfi að samþykkja formlega heildarstefnu þar sem fram komi skýr forgangsröðun, aðgerðaáætlun og mælikvarðar á árangur. Einnig þurfi að tryggja samræmi þjónustunnar milli stofnana og landshluta og að fjárveitingar til hennar taki mið af reglulegu mati á þjónustuþörf. Þá sé brýnt að bæta allt eftirlit með þjónustunni. Loks þurfi stjórnvöld að tryggja að unnt verði að meta mögulegan ávinning af flutningi málaflokksins frá ríki til sveitarfélaga. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert