Talsverður erill á lögreglunni í nótt

Talsverður erill var á lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í nótt en engin alvarleg mál komu þó upp. Ölvun var talsverð í miðbæ Reykjavíkur en þó færra af fólki en oft áður að sögn lögreglunnar. Voru útköllin sem bárust einkum í kringum miðbæinn.

Þá var einnig talsverður erill á Slökkviliði höfðuborgarsvæðisins. Engin útköll voru vegna elds en farið var í 30 útköll vegna sjúkraflutninga.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert