Engin ósk um makrílviðræður

Makríll.
Makríll.

Sjávarútvegsráðuneytið segir, að gefnu tilefni, að engin ósk hafi borist frá Evrópusambandinu um tvíhliða makrílviðræður. Ráðuneytið birti tilkynningu þess efnis á heimasíðu sinni í dag.

Í tilkynningunni segir:

„Undanfarna daga hefur ítrekað verið haft eftir embættismönnum framkvæmdastjórnar ESB að um miðjan september muni fara fram tvíhliða viðræður milli Evrópusambandsins og Íslands um makríl. Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið vill af þessu tilefni taka það fram að engin ósk um slíkar viðræður hefur borist íslenskum stjórnvöldum.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

  • Engin mynd til af bloggara Brynjar Þór Guðmundsson: Loft?
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert