Jóhanna fékk boð á þjóðfund

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra.
Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra. mbl.is/Kristinn

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra greindi frá því að blaðamannafundi að loknum ríkisstjórnarfundi í dag að hún hefði fengið boð á þjóðfund um Stjórnarskrá Íslands sem haldinn verður 6. nóvember.

„Ýmsir telja nú að við eigum ekki að hafa neinar skoðanir á því,“ sagði Jóhanna og bætti við: „Ég mun nú skoða það alvarlega hvað ég geri.“

Alls fá fimm þúsund Íslendingar fá boðsbréf á þjóðfundinn sem fram fer í Laugardalshöll. Þátttakendur voru valdir af handahófi úr þjóðskrá með svokölluðu slembiúrtaki.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert