Afmælisdagur Ómars verði dagur íslenskrar náttúru

Ómar Ragnarsson.
Ómar Ragnarsson.

Svandís Svavarsdóttir, umhverfisráðherra, lýsti í dag vilja til að gera daginn í dag, 16. september, að degi íslenskrar náttúru til heiðurs Ómari Ragnarssyni, sem er sjötugur í dag.

Fram kemur á vef Ríkisútvarpsins, að hlustandi hringdi í Guðfinn Sigurvinsson, annan umsjónarmann síðdegisútvarpsins Rásar 2, í dag og vildi fá umræðu um þá hugmynd að dagurinn yrði framvegis dagur íslenskrar náttúru til heiðurs Ómari.

Guðfinnur hafði þegar samband við Svandísi sem lýsti strax yfir stuðningi sínum. Hún kom í hljóðver Rásar 2 með Ómari sem sagði, að þetta hefði komið sér í opna skjöldu.

Svandís sagðist ætla að kynna málið í ríkisstjórn á morgun. Jóhanna Sigurðarsdóttir, forsætisráðherra, vissi af málinu og væri því samþykk.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert