Vissu af niðurskurði

Reykjanesbær.
Reykjanesbær. www.mats.is

Fulltrúum allra stjórnmálaflokka í bæjarstjórn Reykjanesbæjar hefur verið kunnugt um niðurskurðaráform í rekstri bæjarins frá fyrsta degi. Þetta segir í tilkynningu sem Reykjanesbær sendi frá sér rétt í þessu.

Friðjón Einarsson, oddviti Samfylkingarinnar í bæjarstjórn Reykjanesbæjar, sagði fyrr í dag að hann hefði ekki heyrt af 450 milljóna króna niðurskurðaráætlunum bæjarfélagsins fyrr en í fjölmiðlum í dag.

Í tilkynningu Reykjanesbæjar segir meðal annars: „Í bæjarráði Reykjanesbæjar hefur tvívegis (9.sept. og 16.sept.) verið gerð grein fyrir erindi sem sent hefur verið til framkvæmdastjóra sviða og forsvarsmanna allra ráða og nefnda bæjarins þar sem kallað er eftir vinnu ráðanna til að leggja fram hugmyndir um sparnað og niðurskurð. Þar kemur m.a. fram að stefnt sé að amk. 450 milljón kr. niðurskurði á ársgrundvelli. Þá hefur verið leitað til allra starfsmanna með hugmyndir og ábendingar sem nú er verið að fara yfir.
Þessi vinna  hófst 9. september sl. og hefur verið farið eftir því verklagi sem við á í þeirri vinnu, sérstaklega því sem snýr að starfsmönnun en ekki er um fjöldauppsagnir að ræða heldur áframhaldandi lækkun á starfshlutfalli í samræmi við verkefni sem í gildi hefur verið allt síðasta ár. Haft hefur verið samband við trúnaðarmenn og verður fundað með þeim í næstu viku. Gert er ráð fyrir að bæjarráð og bæjarstjórn fjalli um umræddar tillögur á næstu dögum."

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert