Naut féllu ofan í haughús

Nautin laus úr prísundinni.
Nautin laus úr prísundinni. Mynd: Húnar.123.is

Björgunarsveitin Húnar var kölluð út snemma á miðvikudagsmorgun til að aðstoða ábúendur á Tannstaðabakka í Hrútafirði en þar höfðu fjögur naut fallið ofan í haughúsið.

Sagt er frá þessu á vefnum feykir.is og á vef björgunarsveitarinnar. Vel gekk að ná gripunum upp úr haughúsinu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert