Hafi faglegt eftirlit með fjölmiðlum

Fjölmiðlastofu er ætlað að hafa faglegt eftirlit með fjölmiðlum.
Fjölmiðlastofu er ætlað að hafa faglegt eftirlit með fjölmiðlum. mbl.is/Golli

Menntamálaráðuneytið leggur til að Fjölmiðlastofa verði sett á laggirnar til að hafa faglegt eftirlit með fjölmiðlum, líkt og segir í frumvarpi til laga um fjölmiðla.

Stofnunin yrði sjálfstæð og er henni ætlað að leysa útvarpsréttarnefnd af hólmi, sem fer með eftirlit og umsjón með starfsemi hljóð- og myndmiðla.

Fjölmiðlastofu sé ætlað að hafa sambærilegt eftirlit og umsjón með starfi annarra fjölmiðla.

Fram kemur í fjárlagafrumvarpinu að framlög til stofnunarinnar skýrist af þremur tilefnum.

Í fyrsta lagi er lagt til að veitt verði 23 milljónir króna rekstrarframlag vegna nýrra verkefna skv. frumvarpinu. Í öðru lagi er lagt til að veitt verði 3,5 milljónir tímabundið í stofnkostnað. Í þriðja lagi er lagt til að millifærðar verði til Fjölmiðlastofu 10,3 milljónir króna af reikningi útvarpsréttarnefndar.

Samtals er því gert ráð fyrir 36,8 milljónum króna útgjöldum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert