Hjörleifur sagði sig úr Samfylkingunni

Hjörleifur Sveinbjörnsson
Hjörleifur Sveinbjörnsson Ómar Óskarsson

Hjörleifur Sveinbjörnsson, eiginmaður Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur, hefur sagt sig úr Samfylkingunni. Hann staðfesti þetta í samtali við vefmiðilinn eyjan.is.

Fyrr í vikunni sagði Hrafnkell Sveinbjörnsson, sonur þeirra, sig úr flokknum, en það gerði hann strax eftir atkvæðagreiðslu Alþingis í landsdómsmálinu.

Hjörleifur segist í samtali við Eyjuna ekki þurfa að hafa frekari orð um úrsögnina. Hann sendi flokknum bréf í kjölfar atkvæðagreiðslunnar á Alþingi þar sem hann sagðist segja sig úr Samfylkingunni „í tilefni dagsins.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert