Þyrlan send austur vegna slyss

Einn maður slasaðist í bílveltu á Skeiðarársandi fyrir skömmu. Óskað var eftir aðstoð björgunarþyrlu Landhelgisgæslunnar til að flytja hann á sjúkrahús. Tveir voru í bílnum. Ekki er vitað nánar um málsatvik, en lögreglan hefur ekki lokið störfum á slysstað.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert