Eggin fara illa með Alþingi

Gangstéttin fyrir framan þinghúsið var þakin rusli.
Gangstéttin fyrir framan þinghúsið var þakin rusli. Morgunblaðið/Ómar

Efni í eggjunum sem grýtt var í Alþingishúsið í gærkvöldi fer illa með grjótið í veggjum hússins og dyrakarma, að sögn þingvarða. Nóttin verður nýtt til að hreinsa upp mikið rusl við þinghúsið.

Ljóst má vera að talsverður kostnaður hlýst af því að hreinsa þinghúsið.

Tækjabúnað þarf til en beita þurfti háþrýstihreinsun við að ná eggjahvítunni af veggjum þinghússins á föstudagskvöld eftir mótmælin við þingsetninguna fyrr um daginn.

Alls kyns drasli, s.s. klósettrúllum og drykkjarumbúðum, og matvælum var grýtt í þinghúsið, svo miklu að öll gangstéttin var þakin þegar mest var.

Við þinghúsið í mótmælunum.
Við þinghúsið í mótmælunum. Morgunblaðið/Ómar
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert