Mörður spyr um málefni nímenninganna

mbl.is/Kristinn

Mörður Árnason, þingmaður Samfylkingarinnar, hefur lagt fram fyrirspurn til forseta Alþingis um málefni nímenninganna svokölluðu, sem eru sakaðir um að hafa gert árás á Alþingi 8. desember 2008.

Mörður óskar eftir skriflegum svörum en spurningarnar eru eftirfarandi:

  1. Með hvaða hætti ræðir skrifstofustjóri Alþingis um 100. gr. hegningarlaga í beiðni sem hann sendi lögreglustjóra höfuðborgarsvæðisins 19. desember 2008 vegna atvika í Alþingishúsinu 8. þess mánaðar?

  2. Telur forseti að þessi grein hegningarlaga, um mann „sem ræðst á Alþingi, svo að því eða sjálfræði þess er hætta búin,“ eigi við um atvikin sem til báru 8. desember 2008?
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert