Samvinnu við AGS verði rift

Franek Rozwadowski og Mark Flanagan frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum ræða samstarfið við …
Franek Rozwadowski og Mark Flanagan frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum ræða samstarfið við Íslendinga á fundi í Kjarvalsstöðum. Eggert Jóhannesson

Stjórn Íslandsdeildar Attac fer fram á að ríkisstjórn Íslands slíti samstarfi við AGS og því verði hætt þann 30. nóvember 2010 eins og upphaflega stóð til. Segir í tilkynningu frá Attac að í apríl „hafi samstarfið verið framlengt þegjandi og hljóðalaust“ og án umræðu fram í ágúst á næsta ári.

Samtökin eru til vinstri í stjórnmálum og hafa nokkrir félagar í ungliðahreyfingu Vinstri grænna tekið þátt í starfi Íslandsdeildarinnar.

Í tilkynningu frá samtökunum segir að það sé „lágmarkskrafa að fram fari opin, víðtæk og lýðræðisleg umræða um forsendur framlengingar á samstarfi við AGS“.

Er krafan rökstudd með reynslu síðustu vikna.

„Atburðir undanfarinna vikna sýna að afar brýnt er að binda endi á veru AGS hér á landi. AGS krefst þess að ríkisvaldið hætti að aðstoða fólk í gjaldþrotahættu og AGS krefst þess að ríkisvaldið rústi velferðarkerfinu með grimmdarlegum og glórulausum niðurskurði.

Ríkisstjórnin ætlaði að hlýða, þar til þessum fyrirætlunum var mótmælt af viðeigandi hörku og fjölda. Vilji almennings er alveg skýr. Öllum er það nú ljóst að það var ekki og verður aldrei grundvöllur fyrir samstarfi við sjóðinn.

Nauðsynlegt er að endurskoða grundvöll að endurreisn bankanna um leið og AGS hverfur úr landi. Alræði fjármagnsmarkaðanna verður að afnema og altæk endurskoðun á grundvelli og markmiðum efnahags- og fjármálastefnunnar verður að fara fram.

Sú endurskoðun hafi að leiðarljósi að öll gögn og upplýsingar verði uppi á borðinu og víðtæk lýðræðisleg umræða fari fram um markmið íslenskrar efnahagsstefnu.  Gervallt fjármagnskerfið verður að opna fyrir lýðræðislegu eftirliti á vegum almennings,“ segir í tilkynningunni.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert