Fjárfesta fyrir 86 milljarða

Katrín Júlíusdóttir og Rannveig Rist skrifa undir samninginn í dag.
Katrín Júlíusdóttir og Rannveig Rist skrifa undir samninginn í dag.

Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra, fyrir hönd ríkisstjórnarinnar, og Rannveig Rist, forstjóri fyrir hönd Alcan á Íslandi hf., skrifuðu í dag undir samning sem tengist áformum fyrirtækisins um stækkun og endurbyggingu álversins í Straumsvík. Fjárfesting við stækkunina og væntanlegar framkvæmdir Landsvirkjunar við Búðarhálsvirkjun nema samtals um 86 milljörðum króna.

Að sögn Alcan á Íslandi nemur sú fjárfesting, sem búið er að tilkynna um vegna framleiðsluaukningar álversins í Straumsvík og nýrra og verðmætari afurða, með breytingum á framleiðslulínunni, nærri 60 milljörðum króna og kallar á 620 ársverk á framkvæmdatímanum. Segist fyrirtækið áætla, að framleiðsla og útflutningur muni aukast um tæplega 40 þúsund tonn auk þess sem afurðir álversins verði verðmætari.  

Til að mæta orkuþörfinni fyrir þetta verkefni er Landsvirkjun að hefja framkvæmdir við Búðarhálsvirkjun. Áætlanir gera ráð fyrir að heildarfjárfesting vegna Búðarhálsvirkjunar muni nema um 26 milljörðum króna og að 600-700 ársverk skapist á byggingartíma. Samtals sé því um 86 milljarða króna fjárfestingu og um 1300 ársverk á framkvæmdatímanum að ræða.

Með nýjum raforkusamningi sem undirritaður var 15. júní milli Alcan og Landsvirkjunar, var annars vegar endursamið um verð á allri núverandi orkusölu til álversins og hins vegar samið um afhendingu á viðbótar orku (75 MW) vegna áætlaðrar framleiðsluaukningar álversins. Hinn nýi raforkusamningur kemur alfarið í stað eldri raforkusamnings milli sömu aðila en sá síðarnefndi er fylgiskjal með aðalsamningnum frá 1966.

Alcan segir, að með þeim viðaukasamningi við aðalsamninginn, sem undirritaður var í dag, séu gerðar nauðsynlegar breytingar á aðalsamningnum, þannig að unnt sé að líta á aðalsamninginn frá 1966 og hinn nýja raforkusamning sem tvo sjálfstæða og ótengda samninga.

Samningurinn verður lagður fyrir Alþingi til að veita honum lagagildi, eins og gert var á sínum tíma við aðalsamninginn frá 1966 og þá sjö viðauka sem gerðir hafa verið við hann.


mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert