ÍLS á hlutdeild í flestum framhaldsuppboðum heimila

Íbúðalánasjóður.
Íbúðalánasjóður. mbl.is/Árni Sæberg

Fyrstu vikuna í október, 1.-8. október, hefur 81 heimili verið auglýst á framhaldsuppboði og 55 fasteignir lögaðila. Að meðaltali eru nauðungaruppboðin haldin 5 dögum eftir að þessar auglýsingar birtast. Þetta kemur fram í nýju fréttabréfi Creditinfo. Þar segir jafnframt að boðuð úrræði séu frestir út mars 2011.

Íbúðalánasjóður (ÍLS) er sá kröfuhafi sem á hlutdeild í flestum framhaldsuppboðum heimila.  Næst á eftir mælast síðan tryggingafélög og sveitafélög en þeir aðilar eru með lögbundin veð í fasteignum vegna brunabótatrygginga annars vegar en fasteignagjalda hins vegar.

Þær auglýsingar sem birtar eru sem tilkynning um að nauðungaruppboð á fasteign eigi að fara fram kallast framhaldsuppboð heimila.

Næstu vikur mun Creditinfo uppfæra upplýsingar um framhaldsuppboð daglega.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert