Áhöld til fíkniefnaneyslu fundust í skógarrjóðri

Lögreglu grunar að unglingar hafi neytt fíkniefni í skógarrjóðri.
Lögreglu grunar að unglingar hafi neytt fíkniefni í skógarrjóðri. mbl.is

Lögreglunni á Selfossi var í síðustu viku tilkynnt um að finna mætti reykjaráhöld í skógarrjóðri við Gesthús á Selfossi. Að sögn lögreglu báru áhöldin þess merki að þau hafi verið notuð við kannabisneyslu. Lögreglan biður fólk að láta vita um staði sem bera þess merki að unglingar neyti þar vímuefna.

Auk þess sem áhöld fundust í skógarrjóðrinu var búið að koma upp aðstöðu með stólum og mynda skjól með segli. Lögregla veit ekki hverjir voru að verki.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert