Óvíst með Herjólf í fyrramálið

Herjólfur
Herjólfur mbl.is/Rax

Spár um ölduhæð við Landeyjahöfn í fyrramálið gefa til kynna að aðstæður verði þannig að fella gæti þurft niður tvær fyrstu ferðir siglingar Herjólfs til og frá Vestmannaeyjum í fyrramálið. Samkvæmt sömu spá ættu aðstæður að vera í lagi síðdegis fyrir seinni ferðirnar. 

Þetta kemur fram á vef Vestmannaeyjaferjunnar Herjólfs. Eru farþegar beðnir um að fylgjast með á vef ferjunnar.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert