Botnía á mannanafnaskrá

Mannanafnanefnd hefur fallist á að kvenmannsnafnið Botnía verði fært á mannanafnaskrá. Segir nefndin að nafnið uppfylli ákvæði laga um mannanöfn. Það gerir nafnið Andru hins vegar ekki, m.a. vegna þess að í íslensku endi nöfn aldrei á u í nefnifalli. Hafnaði nefndin því ósk um að nafnið yrði fært á skrá.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert