„Ekki gefið“ að Icesave-deilan leysist í vikunni

Árni Þór Sigurðsson.
Árni Þór Sigurðsson. mbl.is/Ómar

„Nei. Það er nú ekki gefið,“ segir Árni Þór Sigurðsson, formaður utanríkismálanefndar, aðspurður hvort samkomulag í Icesave-deilunni muni liggja fyrir í vikunni.

„Það eru ákveðin atriði sem er enn ágreiningur um og framhaldið ræðst því vitanlega af því hvort samkomulag næst um alla hluti.“

Aðspurður hvað hafi orðið þess valdandi að hreyfing sé komin í samningaviðræðurnar vísar Árni Þór til breyttra aðstæðna í Bretlandi og Hollandi.

„Það er margt sem hefur breyst frá því að við vorum að glíma við þetta síðast. Bæði hefur hin pólitíska staða auðvitað breyst í þessum löndum og síðan hefur staðan breyst í efnahagslegu tilliti hjá þeim og okkur. Þetta hygg ég að valdi því að þeir sýna aukinn áhuga á því að finna niðurstöðu í málið sem er bærilega aðgengileg fyrir alla aðila. Maður skynjar að í haust hefur verið vaxandi áhugi hjá þeim að leysa málið. Það er m.a. talið skýrast af pólitískum breytingum,“ segir Árni Þór og vísar til þingkosninga ytra.


Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert