Fjögur stjórnmálasamtök skila reikningum

Aðeins fjögur stjórnmálasamtök hafa skilað ársreikningum fyrir árið 2009 til Ríkisendurskoðunar, Borgarahreyfingin, Hreyfingin,, Samtaka fullveldissinna og VG. Reikningar hafa m.a. ekki borist frá Framsóknarflokknum, Frjálslynda flokknum, Samfylkingunni og Sjálfstæðisflokknum.

Samkvæmt lögum um fjármál stjórnmálasamtaka og frambjóðenda og um upplýsingaskyldu þeirra skulu stjórnmálasamtök árlega skila Ríkisendurskoðun reikningum sínum sem í kjölfarið skal birta útdrátt úr þeim. Þar eiga að koma fram upplýsingar um heildartekjur og gjöld, uppruna tekna og helstu stærðir í efnahagsreikningi. Þá skal greina sérstaklega frá afsláttum sem viðkomandi samtök hafa fengið frá markaðsverði vöru eða þjónustu. Enn fremur skal birta nöfn allra lögaðila sem veitt hafa framlög til starfseminnar.

Ríkisendurskoðun hefur nú birt á heimasíðu sinni  útdrátt úr reikningum þeirra stjórnmálasamtaka sem hafa skilað reikningum. Útdráttur úr reikningum stjórnmálasamtaka sem enn eiga eftir að skila verður birtur jafnóðum og þeir berast og eftir að Ríkisendurskoðun hefur farið yfir þá.

Upphaflega stóð til að birta útdráttinn sl. haust en það tókst ekki þar sem aðeins ein samtök höfðu skilað reikningi þegar skilafrestur rann út 1. október.
Ríkisendurskoðun segir, að með breytingu á lögum um fjármál stjórnmálasamtaka og frambjóðenda, sem nýlega tók gildi, muni slík samtök ekki geta fengið framlög úr ríkissjóði nema hafa áður skilað reikningum sínum til Ríkisendurskoðunar. Segist stofnunin binda vonir við að heimtur ársreikninga frá stjórnmálasamtökum batni í kjölfar þessarar lagabreytingar.

Vefur Ríkisendurskoðunar

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert