Vinnslustöðin greiðir starfsmönnum bónus

Stjórn Vinnslustöðvarinnar hf. í Vestmannaeyjum ákvað að starfsmenn í landvinnslu fyrirtækisins fengju greiddan 200.000 króna kaupauka nú fyrir jólin.  Þeir sem hafa verið í fullu starfi allt árið fá þessa upphæð en aðrir fá greitt í samræmi við starfshlutfall.
 
Alls eru nú um 280 stöðugildi til lands og sjávar hjá Vinnslustöðinni og fjölgaði um 50 árið 2010. Eitt skip bættist í flota félagsins á árinu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert