Koparplata sett á styttu Jóns Sigurðssonar

Stytta Jóns Sigurðssonar á Austurvelli.
Stytta Jóns Sigurðssonar á Austurvelli. mbl.is/Kristinn

Á nýársdag rennur upp afmælisár Jóns Sigurðssonar forseta en hann fæddist á Hrafnseyri við Arnarfjörð 17. júní 1811. Afmælisins verður minnst með margvíslegum hætti allt árið en merking styttu Jóns Sigurðssonar á Austurvelli markar upphaf afmælishaldsins.

Einar Jónsson myndhöggvari gerði styttuna og lágmyndina „Brautryðjandinn“ í tilefni af 100 ára afmæli Jóns Sigurðssonar 1911 og hún var reist fyrir framan Stjórnarráðshúsið 10. september það ár. Styttan var flutt á Austurvöll 1931. Strax árið 1911 var rætt um að merkja styttuna og oft hefur verið minnst á það síðan en aldrei orðið af því fyrr en nú.

Það eru forsætisráðuneytið og Listasafn Einars Jónssonar sem standa að merkingunni að tillögu afmælisnefndar Jóns Sigurðssonar.

Merkingin er koparplata á bakhlið fótstalls styttunnar með eftirfarandi texta:

JÓN SIGURÐSSON FORSETI  17.6.1811 - 7.12.1879
Leiðtogi sjálfstæðisbaráttu Íslendinga á 19. öld.
Styttuna og lágmyndina „Brautryðjandinn“ gerði Einar Jónsson myndhöggvari
í tilefni af 100 ára afmæli Jóns Sigurðssonar 1911.
Íslendingar austanhafs og vestan gáfu styttuna.
Hún var reist við Stjórnarráðshúsið 1911 en flutt á Austurvöll 1931.
JÓN SIGURÐSSON
Leader of Iceland´s independence movement.

Sólveig Pétursdóttir formaður afmælisnefndar Jóns Sigurðssonar og Júlíana Gottskálksdóttir forstöðumaður Listasafns Einars Jónssonar verða viðstaddar merkinguna, sem verður klukkan 13.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert