Samherji gefur 75 milljónir

Björgvin Björgvinsson, Anna Kristjánsdóttir móðir Kristjáns Vilhelmssonar, eins eigenda Samherja …
Björgvin Björgvinsson, Anna Kristjánsdóttir móðir Kristjáns Vilhelmssonar, eins eigenda Samherja og dætur hans Dagný Linda og Katrín. mbl.is/Kristján

Samherji hf. afhenti í gær 75 milljónir króna til ýmissa samfélagsverkefna á Eyjafjarðarsvæðinu, að stærstum hluta til þess að efla barna- og unglingastarf í íþrótta- og æskulýðsfélögum.

Þetta er þriðja árið í röð sem Samherji veitir styrki sem þessa. Það var fyrst gert 2008 í tilefni þess að 25 ár voru liðin frá því fyrirtækið hóf starfsemi.

Íþróttafélögin KA og Þór fengu hæstu styrkina, 12 milljónir króna hvort til barna- og unglingastarfs. Þá afhenti fyrirtækið einnig fjármuni til meistaraflokka ýmissa íþróttafélaga á Eyjafjarðarsvæðinu. Einn einstaklingur hlaut að þessu sinni styrk; Björgvin Björgvinsson skíðakappi frá Dalvík. Að auki hlaut endurhæfingardeildin í Kristnesi styrk til tækjakaupa og ennfremur ákvað Samherji að stofna sjóð sem ætlað er að efla þjálfun og fræðslu lækna á hjartadeild Sjúkrahússins á Akureyri og gefa þeim aukin tækifæri til að kynna sér nýjungar á sviði rannsókna í hjarta- og æðasjúkdómum.
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert