Ennþá með stjörnur í augum

Þótt erlendir ferðamenn sæki í að upplifa brennurnar yfir ármótin …
Þótt erlendir ferðamenn sæki í að upplifa brennurnar yfir ármótin eru flestir brennugestir heimafólk. mbl.is/Eggert

Talið er að um 3.500 erlendir ferðamenn hafi varið áramótunum hér á landi. Stígandi hefur verið í áramótaferðum erlendra ferðamanna hingað til lands síðustu ár.

Að sögn Ernu Hauksdóttur, framkvæmdastjóra Samtaka ferðaþjónustunnar, eru þetta heldur fleiri ferðamenn en voru hér á sama tíma í fyrra. „Það er búið að vera stígandi í þessu síðustu árin en það er ekkert langt síðan þeir voru mjög fáir. Þeim þykir mjög áhugavert að keyra á milli brenna og horfa á flugeldana.“

Flestir dvelja í landinu í nokkra daga og skilja því eftir töluverðar gjaldeyristekjur hér að hennar sögn. „Það er mikið í boði fyrir erlenda ferðamenn og þeir nýta sér það vel. T.d. hefur hátt hlutfall þeirra farið í dagsferðir en boðið er upp á þær daglega alla dagana yfir jól og áramót frá Reykjavík, sama hvaða dagur það er.“


Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert