Gæsluvarðhaldskrafa tekin fyrir í dag

Lögreglumenn fylgja Sigurjóni Þ. Árnasyni út úr húsnæði sérstaks saksóknara …
Lögreglumenn fylgja Sigurjóni Þ. Árnasyni út úr húsnæði sérstaks saksóknara seint í gærkvöldi. mbl.is/Árni Sæberg

Héraðsdómur Reykjavíkur mun taka fyrir gæsluvarðhaldskröfu á hendur Sigurjóni Þ. Árnasyni, fyrrverandi bankastjóra Landsbankans, og Ívari Guðjónssyni, fyrrverandi forstöðumanns eigin fjárfestinga bankans, kl. 14 í dag.

Mennirnir tveir verða í haldi lögreglu þar til niðurstaða dómarans liggur fyrir, þ.e. hvort úrskurða beri þá í gæsluvarðhald eður ei.

Ólafur Þór Hauksson, sérstakur saksóknari, segir í samtali við mbl.is að rannsókn sé í fullum gangi og skýrslutökum verði haldið áfram í dag. 

„Það var alveg ágætis gangur í skýrslunum í gær. Þetta gekk allt saman ágætlega,“ segir Ólafur, sem getur ekki tjáð sig frekar um málið.

Ekki liggur fyrir hversu lengi rannsókn málsins mun standa yfir. Ólafur bendir á að við skýrslutökur komi ávallt fram nýjar upplýsingar sem rannsakendur þurfi að skoða.

Embætti sérstaks saksóknara rannsakar nú kaup Landsbanka Íslands á hlutabréfum, gefnum út  af bankanum og lánveitingum bankans til hlutabréfakaupa. Snýr rannsóknin að því að upplýsa hvort um sé að ræða brot sem varða auðgunarbrotakafla hegningarlaga í tengslum við ráðstafanir á fjármunum bankans og brot á lögum um verðbréfaviðskipti. Um er að tefla verulega fjárhagslega hagsmuni og rannsóknin tengist fjölda manns og fjölmörgum tilvikum.

Um er að ræða eftirtalin mál:

  1. Meint markaðsmisnotkun Landsbanka Íslands með hlutabréf útgefin af bankanum.
  2. Lánveitingar til félaganna Hunslow S.A., Bruce Assets Limited, Pro-Invest Partnes Corp. og Sigurðar Bollasonar ehf. til kaupa á hlutabréfum í Landsbankanum.
  3. Kaup Landsbanka Íslands á lánasafni Landsbankans í Luxemburg.
  4. Kaup á hlutabréfum í bankanum af hálfu félaga sem héldu um kauprétti starfsmanna Landsbankans og lánveitingar til þeirra félaga.

 Yfirheyrslur í málinu stóðu yfir hjá embætti sérstaks saksóknara í allan gærdag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert