Tillaga um meiri loðnukvóta

Hafrannsóknastofnun leggur til að loðnukvótinn verði aukinn um 65 þúsund tonn og verði alls 390 þúsund tonn.

Er tillagan lögð fram í ljósi nýrrar mælingar á loðnugöngum við austan- og sunnanvert landið. Stærð veiðistofnsins samkvæmt þessum mælingum er 608 þúsund tonn af kynþroska loðnu.

Áður en þessi mæling fór fram er áætlað að veidd hafi verið 180 þúsund tonn af loðnu og því er áætluð stærð stofnsins, sem lögð er til grundvallar aflamarksútreikningum, 788 þúsund tonn. Gildandi aflaregla gerir ráð fyrir að 400 þúsund tonn séu skilin eftir til hrygningar.

Í ljósi þess leggur Hafrannsóknastofnunin til að leyfilegur hámarksafli á vertíðinni 2010/2011 verði ákveðinn 390 þúsund tonn. Er það 65 þúsund tonna aukning frá fyrri tillögu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert