Fjarlægðarskynjari brást og allt í hnút

Dæmi eru um að bílaumboð hafni algerlega að lagfæra endurgjaldslaust galla sem koma fram í bíl ef liðin eru meira en tvö ár frá því að bíllinn var keyptur.

Í neytendakaupalögum er tekið fram að bæta skuli kaupanda óeðlilega galla á vöru sem gera megi ráð fyrir að endist í allt að fimm ár. Kærunefnd lausafjár- og þjónustukaupa hefur fallist á að ýmsir íhlutir í bílum falli undir þessa reglu en niðurstöður nefndarinnar eru ekki bindandi fyrir umboðin.

Verksmiðjuábyrgð hefur frá því í fyrra gilt í fimm ár á öllum bílum frá Toyotaumboðinu. Hjá Heklu býðst kaupendum á nýjum bílum að bæta við sérstakri bilanatryggingu sem tryggingafélagið Vörður selur. Í umfjöllun um mál þetta í Morgunblaðinu í dag segir af konu í Reykjavík sem keypti dýran þýskan gæðabíl árið 2008 og er mjög ósátt við umboðið. Bilun varð í svonefndum fjarlægðarskynjara í bílnum og var henni sagt að hún yrði sjálf að greiða fyrir viðgerðina en neitaði því. Hún benti fyrirtækinu á fimm ára regluna en fékk það svar að erlendi framleiðandinn veitti aðeins tveggja ára verksmiðjuábyrgð.

Vegna ágreiningsins hefur ekki enn verið gert við bílinn enda hefur ekki náðst samkomulag um að verkstæði umboðsins taki bílinn til meðferðar.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert