Búnaðarþing sett í dag

Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra og Haraldur Benediktsson, formaður Bændasamtaka …
Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra og Haraldur Benediktsson, formaður Bændasamtaka Íslands við setningu Búnaðarþings 2011, í dag mbl.is/Kristinn Ingvarsson

Árlegt Búnaðarþing Bændasamtaka Íslands var sett í dag kl. 13.30. í Súlnasal Hótels sögu, undir yfirskriftinni “„Ræktum okkar land.“ 

Haraldur Benediktsson, formaður Bændasamtaka Ísland, setti þingið. Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra Jón Bjarnason ávarpar þingið að því loknu og síðan hefst hátíðardagskrá. Þar mun m.a. formaður norsku bændasamtakanna Nils  T. Bjørke flytja kveðju frá norskum bændum.

Búnaðarþingsfulltrúar funda og skipa í starfsnefndir að lokinni hátíðadagskrá. Þingið stendur fram á miðvikudag 9. mars.

Nýtt myndband um matvælaframleiðslu á krossgötum var sýnt við setningu þingsins.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert