Bannað að afla upplýsinga um starfsmenn

Persónuvernd telur, að öflun Securitas á upplýsingum úr málaskrá lögreglu um alla starfsmenn í öryggisþjónustu samrýmist ekki lagakröfum um sanngirni, meðalhóf og áreiðanleika við vinnslu persónuupplýsinga.

Persónuvernd fjallaði um málið eftir kvörtun frá starfsmanni Securitas. Hann benti meðal á, að í ráðningarsamningum væru m.a. ákvæði um að starfsmenn samþykktu skimun á fíkniefnum hvenær sem er á starfstíma, starfsmenn verði að afhenta sakarvottorð, upplýsi vinnuveitenda um færslur í málaskrá  lögreglu og samþykki að vinnuveitandi athugi færslur hjá vanskilaskrá.

Benti starfsmaðurinn m.a. á að í málaskrá væru skráð öll hans skipti við lögregluna.

Niðurstaða Persónuverndar

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert