Rúmlega tíu þúsund undirskriftir

Merki vefsíðunnar born.is
Merki vefsíðunnar born.is www.born.is

Rúmlega tíu þúsund manns hafa nú skrifað undir áskorun foreldra skóla- og leikskólabarna í Reykjavík til borgaryfirvalda. Undirskriftasöfnunin hófst á sunnudag og verður undirskriftarlistinn afhentur í Ráðhúsinu á morgun.

Söfnunin fer fram á vefsíðunni born.is. Þar er skorað á borgaryfirvöld að falla frá fyrirhuguðum sameiningar- og breytingaráformum í leikskólum, grunnskólum og frístundaheimilum Reykjavíkurborgar.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert