80 jeppar yfir Sprengisand

Formenn klubbsins Benedikt Rúnar Egilsson, Sveinbjörn Halldórsson, og Elmar Sigurgeirsson …
Formenn klubbsins Benedikt Rúnar Egilsson, Sveinbjörn Halldórsson, og Elmar Sigurgeirsson stilltu sér upp við hlið bilanna. mbl.is/Þorgeir Baldursson

Um 80 bílar á vegum Ferðaklúbbsins 4x4 komu yfir Sprengisand í gærkvöldi og í dag var haldin sýning á þessum tröllvöxnu farartækjum á Bílaplani Brims hf. á Akureyri.

Sveinbjörn Halldórsson formaður 4 x 4 klúbbsins, sagði að ferðin yfir Sprengisand hefði gengið vel. Færið hefði verið gott og veðrið frábært. Hópurinn ætlar suður á morgun og fer þá um Kjöl.

Sveinbjörn sagði að margir hefðu lagt leið sína á bílasýninguna til að skoða ökutækin. Bílarnir eru engin smá síðu, en þeir eru á dekkjum sem eru frá 35 tommur og upp í 54 tommur. Í dag fór nokkrir jeppaeigendur í ferð með jeppamönnum frá Akureyri og úr Skagafirði.

Á sýningunni var einn vetnisbíll með búnað frá TEZ sem …
Á sýningunni var einn vetnisbíll með búnað frá TEZ sem vakti athygli. mbl.is/Þorgeir Baldursson
Margir skoðuðu bílana.
Margir skoðuðu bílana. mbl.is/Þorgeir Baldursson
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert