Ríkisstjórnin leggur spilin á borðið í dag

Vilmundur Jósefsson, formaður Samtaka atvinnulífsins, og Vilhjálmur Egilsson framkvæmdastjóri voru …
Vilmundur Jósefsson, formaður Samtaka atvinnulífsins, og Vilhjálmur Egilsson framkvæmdastjóri voru ekki bjartsýnir þegar þeir komu af fundi forsætis- og fjármálaráðherra í gær. mbl.is/Kristinn

Oddvitar ríkisstjórnarflokkanna sýndu forystumönnum Alþýðusambands Íslands og Samtaka atvinnulífsins ekki á spilin á fundi í Stjórnarráðinu í gær. „Við fórum á þennan fund til að fá svör. Þau svör fengum við ekki,“ segir Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ.

Ákveðinn var nýr fundur í dag til að fara yfir drög að þeim ráðstöfunum sem ríkisstjórnin er tilbúin að ráðast í til að liðka fyrir kjarasamningum.

Í umfjöllun um mál þetta í Morgunblaðinu í dag segir, að viðræður um kjarasamninga á almennum vinnumarkaði séu í biðstöðu eftir að forystumenn Samtaka atvinnulífsins tilkynntu ríkisstjórninni að ekki væri unnt að hefja lokaatlögu að gerð kjarasamninga vegna þess hve mörg stór mál eru í óvissu.

„Ég get ekkert sagt um það. Okkur var ekki sýnt mikið á spilin,“ segir Vilmundur Jósefsson, formaður SA, um fundinn með forsætis- og fjármálaráðherra í gær. „Ég á eftir að sjá að þeir geti komið með heilan pakka sem dugi til að við sjáum framtíðina í það björtu ljósi að við treystum okkur að ljúka samningi til þriggja ára,“ segir hann.

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra sagði eftir fundinn að ríkisstjórnin væri að leggja lokahönd á tillögur og útreikninga á áhrifum þeirra.


Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert