Kosning vígslubiskups kærð

Skálholtskirkja. Kosning um nýjan vígslubiskup hefur verið kærð.
Skálholtskirkja. Kosning um nýjan vígslubiskup hefur verið kærð. mbl.is/Brynjar Gauti

Kosning vígslubiskups í Skálholti hefur verið kærð. Lögmaður sr. Agnesar M. Sigurðardóttir lagði fram kæruna vegna þess að við talningu atkvæða voru tekin til greina tvö atkvæði sem póstlögð voru eftir að skilafresti lauk.

„Mér finnst að það eigi að fara eftir reglum og finnst að það hafi ekki verið farið eftir reglum þarna,“ sagði sr. Agnes, aðspurð um kæruna. Hún sagði að atkvæðin tvö hafi verið póststimpluð 11. apríl, sem var mánudagur, en skilafresti lauk föstudaginn 8. apríl.

Kæran var tekin fyrir á fundi kjörstjórnar í morgun, að sögn Guðmundar Þórs Guðmundssonar, framkvæmdastjóra kirkjuráðs, en hann hefur starfað með kjörstjórninni.

Hann sagði að kæran, ásamt athugasemdum kjörstjórnar, hafi verið lögð fyrir yfirkjörstjórn þjóðkirkjunnar til úrskurðar.  Yfirkjörstjórn hefur viku til að úrskurða um kæruna.

Kosningu vígslubiskups í Skálholti lauk föstudaginn 8. apríl síðastliðinn. Á kjörskrá voru 151 maður og  kjörsókn var 98,6%. Atkvæði féllu þannig:

Sigrún Óskarsdóttir 40 atkvæði
Jón Dalbú Hróbjartsson 35 atkvæði
Agnes M. Sigurðardóttir 34 atkvæði
Kristján Valur Ingólfsson 27 atkvæði
Karl V. Matthíasson 12 atkvæði.

Einn seðill var auður.

Þar eð enginn frambjóðandi fékk meirihluta greiddra atkvæða var ákveðið, samkvæmt reglum, að kjósa í síðari umferð á milli þeirra Sigrúnar Óskarsdóttur og Jóns Dalbú Hróbjartssonar. Aðeins munaði einu atkvæði á því fylgi sem sr. Jón Dalbú og sr. Agnes fengu í fyrri umferð.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert