Segir nauðsynlegt að auka hagvöxt

Endurreisn hagkerfisins verður að vera forgangsverkefni íslenskra stjórnvalda en meira hefur þó farið fyrir orðum en gerðum í þeim efnum að undanförnu að mati Viðskiptaráðs Íslands. Viðskiptaráð bendir á að frá bankahruninu haustið 2008 hafi landsframleiðsla dregist saman um tæplega 11% sem jafngildi samdrætti í verðmætasköpun hagkerfisins upp á 165 milljarða króna á aðeins tveimur árum.

Viðskiptaráð leggur áherslu á að lífskjör Íslendinga ráðist af þeim verðmætum sem hagkerfið skapi og hagvöxtur sé því undirstaða stöðugt bættari lífsgæða. Skjótur bati hagkerfisins sé forsenda þess að kostnaður vegna kreppunnar verði lágmarkaður og það sem tapaðist verði endurheimt eins og kostur sé.

Kaupmáttur nátengdur hagvexti

„Íslendingar eru vanir því að kaupmáttur aukist um 1% til 3% árlega og til þess að viðhalda slíkri árlegri kaupmáttaraukningu þarf kröftugt atvinnulíf sem skapar verðmæti. Ef horft er til þróunar kaupmáttar undanfarna tvo áratugi, má sjá að kaupmáttaraukning helst í hendur við hagvöxt á mann líkt og meðfylgjandi mynd ber með sér. Frá árinu 1990 hefur verðmætasköpun hvers Íslendings vaxið um 32% en á sama tíma hefur kaupmáttur aukist um 31%. Því má segja að markmið um aukinn hagvöxt feli í sér markmið um bætt lífskjör,“ segir í tilkynningu Viðskiptaráðs.

Verði hagvöxtur veikur á næstu árum eins og spár geri ráð fyrir segir Viðskiptaráð að uppsafnað velferðartap vegna tapaðs hagvaxtar geti orðið allt að 3.400 milljarðar króna fram til ársins 2020. „Í þessu samhengi er rétt að benda á að landsframleiðsla Íslands var rétt rúmlega 1.500 milljarðar árið 2009. Fjárhæðirnar sem hér um ræðir eru gríðarlega háar þar sem áhrif veikari vaxtar koma betur í ljós eftir því sem fram í sækir,“ segir í tilkynningunni.

Yfirlýsing Viðskiptaráðs Íslands

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert