Nýtt skip Ísfélagsins sjósett í Síle

Nýtt skip Ísfélags Vestmannaeyja var sjósett í Sjíle í dag …
Nýtt skip Ísfélags Vestmannaeyja var sjósett í Sjíle í dag og því gefið nafnið Heimaey VE 1. Ljósmynd/Ísfélagið

Nýsmíði Ísfélags Vestmannaeyja í skipasmíðastöðinni ASMAR í Síle lauk í dag og var skipinu gefið nafnið Heimaey VE 1. Skipið er af nýrri kynslóð uppsjávarskipa, 71,1 metra lant o14,40 metra breitt. Það var sjósett í borginni Talcahuano í Sjíle. 

Heimaey VE 1 verður að sögn Ísfélagsins útbúið til nóta- og flottrollsveiða. Burðargeta þess er rúmlega 2.000 tonn í 10 tönkum, sem eru með öflugri RSW-kælingu. Við hönnun skipsins var tekið mið af því að orkunotkun yrði eins hagkvæm og kostur er með tilliti til siglinga og veiða. Meðferð aflans verður eins og best verður á kosið að sögn Ísfélagsins og aðbúnaður áhafnar til fyrirmyndar.  Skipið verður afhent fullbúið í mars á næsta ári.

Dagurinn var einnig mikill gleðidagur í skipasmíðastöðinni ASMAR því að Heimaey VE 1 er fyrsta nýsmíðin sem er sjósett þar eftir að miklir jarðskjálftar skóku Síle í lok febrúar í fyrra.  Í kjölfar jarðskjálftans skall mikil flóðbylgja á strönd landsins sem olli manntjóni, eyðileggingu og gífurlegu tjóni í skipasmíðastöðinni og færði hana í kaf.   

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert