Börðu mann með járnstöngum

Akranes.
Akranes. www.mats.is

Þrír karlmenn réðust á föstudagskvöld inn í hús við Presthúsabraut  á Akranesi og börðu húsráðandann með járnstöngum.

Aðstoð lögreglu var óskað klukkan 21:30 og voru húsráðandinn og ung kona, sem einnig varð fyrir höggum, flutt á sjúkrahús til skoðunar.  Húsráðandinn fékk mörg högg, m.a. í höfuðið.  Hann var lagður inn til frekari rannsóknar.

Tveir karlmenn voru fljótlega handteknir  vegna málsins og sá þriðji um hádegi á laugardag.  Þeir voru yfirheyrðir og játuðu verknaðinn.  Allir voru vopnaðir járnbareflum sem þeir notuðu við að berja á húsráðandanum.

Lögreglan segir, að ástæða árásarinnar sé á reiki, en muni vera tengd fíkniefnum.

Árásarmennirnir voru allir látnir lausir á laugardagskvöld eftir skýrslutökur og er málið talið upplýst
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert