Ráðherrar kynna sér aðstæður

mbl.is/Eggert

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra og Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra kynna sér nú aðstæður á öskuslóðum með fulltrúum almannavarna og ríkislögreglustjóra, en þau eru nú stödd við Þorvaldseyri.

Jóhanna og Ögmundur funduðu í morgun með aðgerðastjórn og almannavarnanefnd á Hellu og fóru yfir stöðu mála vegna eldgossins í Grímsvötnum.

Fram kom að gosið virðist í rénun og allar aðgerðir á hamfarasvæðinu virðast ganga vel. Ekki er vitað um nein slys á fólki og vel er fylgst með aðstæðum bænda og búfénaðar.

Matsáætlun sem ríkisstjórnin bíður eftir gengur samkvæmt áætlun og verður rædd á næsta ríkisstjórnarfundi.

Ráðherrarnir munu í dag kynna sér aðstæður á hamfarasvæðinu og m.a. funda með vettvangsstjórn aðgerða á Kirkjubæjarklaustri.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert