Lýst eftir 15 ára stúlku

Kristnýju Huld Einarsdóttir.
Kristnýju Huld Einarsdóttir.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Kristnýju Huld Einarsdóttur, 15 ára. Talið er að hún sé klædd í svarta hettupeysu og svartar þröngar íþróttabuxur.

Kristný er grannvaxin, 168 sm á hæð, með blá augu og meðalsítt ljóst hár með bleikum strípum í.

Síðast er vitað um ferðir hennar á Laugarvegi í Reykjavík um klukkan 21:00 í gærkvöld, mánudagskvöld.

Þeir sem geta gefið upplýsingar um ferðir Kristnýjar eru beðnir um að hafa samband við lögregluna í síma 444-1000.


mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert