Hafa þungar áhyggjur af verkfallsaðgerðum

Flugvirkjar við störf.
Flugvirkjar við störf. mbl.is/Þorkell

Samtök ferðaþjónustunnar lýsa þungum áhyggjum vegna verkfallsaðgerða flugvirkja Icelandair sem raskar flugstarfsemi fyrir tugi þúsunda farþega með ófyrirsjáanlegum afleiðingum. 

Samtökin segja að ferðaþjónustan sé sérstaklega viðkvæm fyrir slíkum truflunum og  þær séu afar slæmar fyrir ímynd og orðspor Íslands sem ferðamannalands.  Ferðamenn forðist almennt svæði þar sem búist sé við slíkum truflunum.
 
„Íslendingar  þóttust hafa sloppið bærilega frá nýliðnum náttúruhamförum.  Það er því óþolandi að íslensk ferðaþjónusta sé enn einu sinni sett í uppnám og nú af völdum starfsmanna sem telja sig eiga kröfu á meiri launahækkunum en allur fjöldinn og eru í þeirri í stöðu  að stöðva flug til og frá landinu.  Þetta er því alvarleg staða fyrir ferðaþjónustuna nú í upphafi háannar en það er mjög litið til þess að gott ferðasumar geti skapað dýrrmæt störf og gjaldeyristekjur sem munar um í erfiðu efnahagsástandi.

Samtökin treysta því að þetta vandamál verði leyst nú þegar,“ segir í yfirlýsingu frá Samtökum ferðaþjónustunnar. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert