Rollur ráðast á garðana

Garðar efst í Bolungarvík og kirkjugarðar hafa orðið illa úti …
Garðar efst í Bolungarvík og kirkjugarðar hafa orðið illa úti vegna ágangs sauðfjár. Árni Sæberg

Sauðfé hefur sótt í garða Bolvíkinga efst í bænum og eru íbúar í hverfinu orðnir langþreyttir á heimsóknum ferfætlinganna, að því er framkemur á fréttavef Bolvíkinga. Þar er birtur fjöldi mynda af atgangi kindanna.

Kindurnar hafa verið sérlega aðgangsharðar í sumar og er lélegum girðingum og skorti á rörahliði m.a. kennt um. Þá er úthagi rýrari en oft áður vegna kulda fram eftir sumri. 

Auk þess að éta gróður í húsagörðum hafa kindurnar lagt leið sína í kirkjugarða bæjarins og étið þar blóm af leiðum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert