Kvörtuðu undan hávaða við heimili Jóns Ásgeirs

Lögregla við heimili Jóns Ásgeirs.
Lögregla við heimili Jóns Ásgeirs. Ljósmynd/pressphotos.biz

Lögreglan í Reykjavík mætti fyrir utan heimili Jóns Ásgeirs Jóhannessonar og Ingibjargar Pálmadóttur í gærkvöldi en kvörtun hafði borist frá nágrönnum vegna hávaða frá tónlist.

Mótmæli höfðu verið boðuð á Fésbókinni þar sem mótmæla átti samkvæmi í húsinu. Fáir mættu til að mótmæla, en skömmu fyrir miðnætti mættu hins vegar fimm lögreglumenn á svæðið og ræddu við húsráðendur vegna kvörtunar nágranna undan hávaða frá samkvæmi í húsinu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert