Ferðamenn fari varlega um hálendisvegi

Björgunarsveitarmenn aðstoða ferðalanga á hálendinu. Úr myndasafni.
Björgunarsveitarmenn aðstoða ferðalanga á hálendinu. Úr myndasafni. Landsbjörg

Fram kemur í tilkynningu frá Slysavarnarfélaginu Landsbjörg að í ljósi þess að þjóðvegur eitt sé í sundur um tíma sunnan Mýrdalsjökuls megi reikna með aukinni umferð um hálendið, þá einkum Fjallabaksleið nyrðri og jafnvel Sprengisandsleið.

Landsbjörg beinir því til ferðamanna af þeim sökum að kynna sér alltaf vel aðstæður áður en lagt er af stað til að mynda á vefsíðu Vegagerðarinnar og Veðurstofu Íslands auk vefsíðunnar Safetravel.is.

„Sem fyrr eru björgunarsveitir félagsins til taks í Hálendisvaktinni og eru staðsettar að Fjallabaki, á Sprengisandi, á Kjalvegi og norðan Vatnajökuls. Þurfi ferðalangar á aðstoð að halda skal hafa samband við Neyðarlínu í númerinu 112 sem kemur hjálparbeiðnum áleiðis á rétta staði,“ segir ennfremur í tilkynningunni.

Vefsíða Vegagerðarinnar: www.vegagerdin.is

Vefsíða Veðurstofu Íslands: www.vedur.is

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert