Brúin tilbúin um helgina

Frá brúarsmíði í gær
Frá brúarsmíði í gær mbl.is/Golli

Umferð verður hleypt yfir bráðabirgðabrúna yfir Múlakvísl um helgina. Ekki liggur ljóst fyrir hvort það verður á morgun eða á sunnudag.

Múlakvísl verður veitt undir nýja bráðabirgðabrú yfir ána klukkan 17 í dag samkvæmt tilkynningu frá Vegagerðinni en áður hafði staðið til að gera það næstu nótt. Vegna þessa verður gert tímabundið hlé á flutningum á bifreiðum og fólki yfir ána á sama tíma eða klukkan 17 en þeir hafa staðið yfir síðan klukkan sjö í morgun. 

Ekki liggur endanlega fyrir hvenær umferð verður hleypt yfir nýju brúna fyrr en í fyrramálið.

Brúarsmíði yfir Múlakvísl
Brúarsmíði yfir Múlakvísl mbl.is/Golli
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert