Óvissustig gildir áfram

Sigketillinn á mynd sem var tekin í fluginu í dag
Sigketillinn á mynd sem var tekin í fluginu í dag HAG

Ríkislögreglustjóri hefur ákveðið í samráði við lögreglustjórann á Hvolsvelli og vísindamenn Veðurstofu Íslands og Jarðvísindastofnunar að viðhalda óvissustigi almannavarna næstu tvær vikurnar.

Á þessum tíma verður reglulegt eftirlitsflug yfir jökulinn og fylgst vel með framvindunni. Jafnframt er talið ástæðulaust að viðhalda bannsvæði á austurhluta Mýrdalsjökuls, en vakin er athygli á því að mikilar sprungumyndanir eru á suðausturhluta jökulsins. Þetta kemur fram í tilkynningu frá almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra eftir að flogið var yfir sigkatla í Mýrdalsjökli í dag.

Markmið flugsins var að afla upplýsinga ástand jökulsins og bera þær saman við upplýsingar sem aflað var í flugi þann 11. júlí síðastliðinn. Eftir flugið í dag er ljóst að engar umtalsverðar breytingar hafa orðið á jöklinum.

Leysingavatn er í dýpsta katlinum. Þetta vatn er eðlileg afleiðing sólbráðar af yfirborði jökulsins og stafar ekki af óvenjulegri jarðhitavirkni undir jöklinum. 

Mýrdalsjökull 11. júlí 2011.
Mýrdalsjökull 11. júlí 2011. Ljósmynd/Landhelgisgæslan
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert