Hækkaði eldsneyti á ný

N1 hækkaði eldsneytisverð í gærkvöldi á ný um 3 krónur eftir að hafa dregið hækkunina til baka um tíma í gær. Hafa öll olíufélögin nú hækkað eldsneytisverð.

Hæst er verð á bensíni hjá Shell, þar sem lítrinn kostar 244,80 krónur. Ódýrastur er hann hjá Orkunni, 242,50 krónur. Verð á dísilolíulítra er á bilinu 242,50 til 242,90 krónur. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert