Iceland Express flýgur til Flórída

Myndin er frá Flórída
Myndin er frá Flórída

Iceland Express mun fljúga til Flórída í Bandaríkjunum allan næsta vetur. 

Flogið verður á laugardögum frá Keflavík til Flórída og á sunnudögum heim. 

Fyrsta flugið verður í byrjun október og verður flogið fram í miðjan apríl 2012 eða fram yfir páska. Félagið flaug til Flórída síðastliðinn vetur.

„Þetta er hluti af stækkun leiðakerfisins okkar á Norður-Atlantshafsleiðinni,“ segir Matthías Imsland, forstjóri Iceland Express, í fréttatilkynningu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert